Tvísköttunarsamningar

Tvísköttunarsamningar eru gerðir milli ríkja til að koma í veg fyrir að einstaklingar og fyrirtæki verði fyrir tvísköttun tekna og/eða eigna. Þegar aðili búsettur í einu ríki aflar tekna í öðru ríki eða á þar eignir, geta bæði ríkin átt kröfu um skattgreiðslur og menn þannig lent í tvískattlagningu sömu tekna eða eigna. Með tvísköttunarsamningum hafa ríkin gert samning um hvernig skattheimtunni skuli háttað, þ.e. hvor eigi skattlagningarrétt og hvernig þeir skipti honum. Ísland hefur gert tvísköttunarsamninga við eftirtalin ríki:

Bandaríkin Bretland Þýskaland
Pólland Norðurlönd Litháen
Lettland Kína Kanada
Holland Eistland