Fyrirmyndarfyrirtæki
Í fjögur ár í röð hefur PricewaterhousCoopers hf. hlotið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í könnun sem VR stendur fyrir.
Eftirsóknarverðir vinnustaðir byggja ímynd sína og orðstír á ánægju starfsfólks. Ánægju má mæla á mismunandi vegu en í könnun VR er hún mæld í fjórum yfirþáttum sem eru traust til yfirmanna, virðing fyrir starfsfólki, stolt af fyrirtæki og starfsandi.
Við erum stolt af árangrinum og þessi glæsilegi vitnisburður hvetur okkur til enn frekari uppbyggingar og þróunar félagsins í góðri samvinnu starfsfólks, stjórnenda og eigenda.