Fréttir

Á fimmtudagsmorguninn 1. október kl. 10.00 komu starfsmenn frá Embætti sérstaks saksóknara í húsakynni PricewaterhouseCoopers hf. í Skógarhlíð 12, til að leggja hald á gögn sem  tengjast endurskoðun á reikningsskilum Landsbanka Íslands hf. og Glitnis banka hf. og dótturfélögum þeirra.

Af hálfu PricewaterhouseCoopers er lögð áhersla á að vinna sem best með embættinu og eru starfsmönnum þess afhent öll umbeðin gögn.

Fyrir liggur að heimsóknin tengist rannsókn embættisins á falli bankanna. Tekið skal fram að gagnaöflunin beinist ekki að PricewaterhouseCoopers,  einstökum starfsmönnum félagins né öðrum viðskiptavinum þess.

Nánari upplýsingar veitir

Reynir Vignir, framkvæmdastjóri – TSP í síma 5505300

 

PricewaterhouseCoopers tók þátt í Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna, sem haldin var á Hilton Hótel Nordica daga 1.-2. október. Ráðstefnan heppnaðist í alla staði vel og alls tóku um 360 sveitarstjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélaga þátt. Nánari upplýsingar um dagskrá og erindi sem flutt voru á ráðstefnunni má finna á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga hér

 

Miðvikudaginn 27. maí stóðu PricewaterhouseCoopers, Háskóli Íslands, Viðskiptablaðið, AP Almannatengsl og Norsk Styreinfo fyrir kjöri á stjórnarformanni ársins 2009. Markmiðið var að veita þeim stjórnarformanni viðurkenningu, sem náð hafði góðum árangri og stýrt starfi stjórnar af heilindum, með gott viðskiptasiðferði og samfélagsábyrgð að leiðarljósi. Allar nánari upplýsingar um kjör stjórnarformanns ársins má nálgast hér

 

PricewaterhouseCoopers, SAS Institue og Háskólinn í Reykjavík efndu til málþings föstudaginn 27. mars, í Háskólanum í Reykjavík. Kynntar voru glænýjar niðurstöður rannsóknar á stjórnunarreikningsskilum á Íslandi, en þetta er í fyrsta sinn sem slík rannsókn hefur verið gerð á Íslandi og því mikill fengur fyrir endurskoðendur, stjórnendur fyrirtækja og aðra áhugasama. Fundarstjóri var Guðfinna S. Bjarnadóttir og var aðgangur ókeypis og öllum opinn. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Háskólans í Reykjavík hér

 

PricewaterhouseCoopers, í samstarfi við Lagadeild Háskólans í Reykjavík, stendur fyrir hádegisfundi þriðjudaginn 10. mars n.k. frá kl. 12:00-13:15 í stofu 231a í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2. Fyrirlesari er Eva Joly, en frá árinu 1994 gegndi Eva starfi yfirrannsóknardómara, Judge d’Instruction, í Frakklandi og var lykilmaður í að rekja eitt stærsta spillingarmál sem upp hefur komið þar í landi, þar sem olíufélagið Elf Aquitaine var grunað um misferli. Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra mun flytja ávarp og fundarstjóri verður Elín Árnadóttir sviðsstjóri Skatta- og lögfræðisviðs PwC. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn, fundurinn fer fram á ensku.

 

Fjármáladagur PricewaterhouseCoopers var haldinn föstudaginn 23. janúar s.l. Þangað var nemendum í meistaranámi í fjármálum og tengdum greinum boðið og kynnt starfssemi Fyrirtækjaráðgjafar PwC. Skyggnst var inn í heim fjármálanna, rætt um verðmöt, áreiðanleikakannanir, IFRS staðla og beitingu þeirra, líkanagerð og fleiri atriði sem snúa að þeirri starfsemi sem fer fram innan Fyrirtækjaráðgjafar PwC.

 

Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna var haldin 13-14 nóvember s.l. á Hilton Hotel Nordica. PricewaterhouseCoopers var þátttakandi í ráðstefnunni, en þangað voru mættir aðilar frá öllum sveitarfélögum landsins. Dagskráin bar keim af breyttum aðstæðum sveitarfélaganna í skugga kreppu og til hvaða aðgerða hægt væri að grípa. Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar má nálgast á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga hér

 

1. júlí 2008: Til þess að fagna þeim tímamótum að í dag eru 10 ár síðan Pricewaterhouse og Coopers & Lybrand sameinuðust og til varð PricewaterhouseCoopers hefur PwC hafið samstarf með Sameinuðu þjóðunum við að byggja skóla, þjálfa kennara og veita námsgögn til yfir 20.000 barna í flóttamannabúðum í Darfúr héraðinu í Súdan. Þetta frumkvæði byggir á framlögum PwC fyrirtækjanna og starfsfólki þeirra, en 10 daga átak var innan PwC sem hvatti stjórnendur og starfsfólk til að leggja sitt af mörkum til að styrkja þetta frumkvæði. Átakið hefur þegar skilað mörg hundruð þúsund dollurum í söfnunina og lagði stjórn PwC á Íslandi og starfsfólk sitt af mörkum með háum fjárframlögum. Teljum við þetta góða leið til þess að fagna þessum mikilvægu tímamótum og velgengni PricewaterhouseCoopers um allan heim.

 

Fimmtudaginn 5. júní býður Fjárfestingarstofan til morgunverðarfundar þar sem kynntar verða niðurstöður samkeppnisgreiningar á Íslandi fyrir ákveðin form fjármálafyrirtækja. PricewaterhouseCoopers er virkur þátttakandi í ráðstefnunni. Aðal fyrirlesari er Laurens Narraina, skattasérfræðingur hjá PwC í Belgíu og Elín Árnadóttir, sviðsstjóri Skatta- og lögfræðisviðs PwC í Reykjavík tekur þátt í pallborðsumræðum. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel kl. 08:15 - 10:00. Hér má nálgast glærur Laurens Narraina. Sækja PDF skrá (416 kb)

 

Föstudaginn 16. maí halda PricewaterhouseCoopers og Háskólinn á Bifröst ráðstefnu um hvað felist í góðum stjórnarháttum innan opinberra stofnanna og fyrirtækja undir yfirskriftinni 'Stjórnarhættir hins opinbera og einkageirinn - má læra hvort af öðru?'. Sérfræðingar í stjórnarháttum og þekkt fólk úr atvinnulífinu heldur fyrirlestra og gefst fólki tækifæri á að koma með spurningar úr sal. Ráðstefnan verður haldin á Grand hótel og stendur yfir frá 14:00 - 16:00 og móttaka fyrir ráðstefnugesti á eftir. Nánari dagskrárliði er að finna hér.

 

PricewaterhouseCoopers er leiðandi alþjóðlegt þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki og eru leiðtogar PwC reglulega beðnir um að deila viðhorfum sínum með viðskiptaheiminum. Samuel A. DiPiazza, framkvæmdastjóri PwC Global, talaði við Financial Times þann 11. apríl 2008 um þróun hagkerfisins og hvað við getum lært af síðustu árum.

 

Andrew Khan, ráðgjafi hjá PricewaterhosueCoopers, hélt fyrirlestur þann 18. mars hjá Félagi löggiltra endurskoðenda, um tölvuendurskoðun. Þar fjallaði Andrew fyrst og fremst um hvað tölvuendurskoðun er, af hverju fyrirtæki þurfa að huga að endurskoðun tölvukerfa fyrirtækja, hvaða hættur ber helst að varast og hvernig slík endurskoðun fer fram. Fyrirlesturinn fór fram á ensku og hægt er að nálgast glærurnar hér. Sækja PDF skrá (111 kb)

PricewaterhouseCoopers og Oracle stóðu fyrir ráðstefnu "Öryggi í viðskiptakerfum" þann 13. mars sem haldin var í Húsnæði PwC í Skógarhlíð 12. Meðal þess sem fjallað var um er kennistuldur og mögulega glötuð viðskiptatækifæri.
Dagskrá, skráning og aðrar upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér

PricewaterhouseCoopers tók þátt í Framadögum sem haldnir voru föstudaginn 1. febrúar í Háskólabíó. Framadagar heppnuðust vel og nemendur tóku vel á móti okkur. 

 

Á hverju ári styrkir PricewaterhouseCoopers góðgerðarmál í stað þess að senda viðskiptavinum okkar jólakort. Desember 2007 ákváðum við að styrkja forvarnarsvið Samhjálpar, Marítu á Íslandi.
Hér er hægt að lesa nánar um styrk PwC til Marítu

 

Þann 11. desember 2007 stóðu PricewaterhouseCoopers og Viðskiptaráð Íslands fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi um Milliverðlagningu. Á fundinum fjölluðu Aðalsteinn Hákonarson, deildarstjóri skattasviðs Ríkisskattstjóra, Kristján G. Valdimarsson, forstöðumaður skattaráðgjafar Landsbankans og Ian Dykes, meðeigandi hjá PwC í Bretlandi um milliverðlagsreglur og hugsanlega nálgun hérlendis. Nánari upplýsingar um morgunverðarfundinn er að finna hér ásamt glærum fyrirlesara