Launagreining PwC

Áreiðanlegar upplýsingar um launamarkaðinn eru mikilvægur þáttur af rekstri og áætlanagerð fyrirtækja. Launagreining PwC er stærsta verkefni sinnar tegundar á Íslandi. Skýrsla Launagreiningar PwC er gefin út í lok hvers árs og í henni koma fram markaðslaun fyrir u.þ.b. 100 starfsheiti á íslenskum vinnumarkaði.

Öllum fyrirtækjum er frjálst að taka þátt í Launagreiningu PwC með því að leggja til launagögn. Gagna er aflað beint úr launakerfum fyrirtækja, en það gefur raunverulega mynd af markaðnum.

Til að halda besta starfsfólkinu er brýnt að greiða því samkeppnishæf laun. Reynslan hefur sýnt að upplýsingar í skýrslu Launagreiningar PwC hafa nýst vel til mótunar launastefnu og við einstaka launaákvarðanir.