Kerfis- og ferlagreiningar (SPA)
Umhverfi upplýsingatækni og reikningsskila er stöðugt að verða flóknara í viðskiptaheimi nútímans á sama tíma og menn reiða sig enn meira á þær upplýsingar sem koma frá upplýsingakerfum og unnar eru eftir ákveðnum verkferlum. Auk þess er með nýjum reglum í mörgum löndum lögð meiri áhersla á innri eftirlitsþætti og oft krafist sjálfstæðrar staðfestingar á skilvirkni innra eftirlits.
Áhersla á mótun, skráningu og virkni eftirlitsþátta er bráðnauðsynleg til að tryggja að upplýsingar sem notaðar eru við reikningsskil og ákvarðanatöku stjórnenda séu nákvæmar og nýjar.
Ef staðan er þessi:
- Þig vantar staðfestingu á gæðum þeirra upplýsinga sem upplýsingakerfi þín reiða fram.
- Þú þarfnast aðstoðar við skráningu eða prófun á innri eftirlitsþáttum við reikningsskil.
- Þú þarfnast sjálfstæðrar könnunar á viðskiptaferlum og uppbyggingu eftirlitsþátta í fyrirtæki þínu, þar með talið að greina veikleika og möguleika til breytinga á aðgerðum í eftirlitsumhverfinu.
- Þú reiðir þig á fjárhagslegar upplýsingar frá þriðja aðila og þarfnast sjálfstæðrar staðfestingar á þeim upplýsingum.
- Fyrirtæki þitt veitir öðru fyrirtæki þjónustu og er beðið um að útvega staðfestingarskýrslu fyrir þjónustuvottun.
- Þú ert að innleiða eða hefur nýlega innleitt nýtt upplýsingakerfi og vilt láta kanna eftirlitsþætti í upplýsingaumhverfinu.
- Þú stendur í sameiningu eða annars konar umbreytingu og þarft að kanna áreiðanleikaupplýsingakerfa og eftirlitsþátta í eftirlitsumhverfinu.
Hvernig getur PwC hjálpað þér?
Með kerfis- og ferlagreiningu okkar (SPA) veitum við þjónustu sem tengist eftirlisþáttum í reikningsskilaferlinuhvað varðar fjárhagsferla og stjórn upplýsingakerfa. Með kerfis- og ferlagreiningu, bæði fyrir viðskiptavini sem við framkvæmum endurskoðun hjá og aðra, bjóðum við:
- Könnun á almennum eftirlitsþáttum í upplýsingaumhverfinu
- Fjárhagsleg og rekstrarleg verkfæri//könnun á stjórnun viðskiptaferla
- Könnun á öryggi gagnagrunna
- Staðfestingu þriðja aðila og álitsgjöf
- Hlítni við lög og reglur (lagaákvæði um friðhelgi einkalífs, staðlar um öryggi gagna)
- Könnun á áreiðanleika upplýsingakerfa og eftirlitsþátta í upplýsingaumhverfinu
- Eftirlit og eftirfylgni með innleiðingarferli upplýsingakerfa
- Gagnaþjónustu (til dæmis tölvustudd endurskoðunartækni (CAAT), könnun á gæðum gagna)
- Könnun á tölvuöryggiÁhættugreining og stöðlun í upplýsingatækni
- ERP-könnun á stillingu lykilþátta og sjálfvirkra aðgerða innan viðskiptaferla til að koma á réttum stillingum.