Innra eftirlit
Innra eftirlit hefur verið skilgreint sem ferli sem mótast af stjórn fyrirtækis, innri stjórnendum þess og starfsmönnum. Innra eftirliti er ætlað að auðvelda stjórnendum fyrirtækja að hafa stjórn á rekstri þeirra. Sækja bækling um innra eftirlit (281 KB).
Tilgangur innra eftirlits er að veita hæfilega vissu um að fyrirtækið nái eftirtöldum markmiðum:
- Árangur og skilvirkni í starfseminni
- Áreiðanlegar fjárhagsupplýsingar
- Samkvæmni við lög og reglur
Innra eftirlit er ekki einstök aðgerð framkvæmd af einhverjum tilgreindum aðila innan eða utan fyrirtækisins heldur röð aðgerða sem finna má víðs vegar í fyrirtækinu og snertir ólík störf. Innra eftirlit er í raun samtvinnað eðlilegri starfsemi fyrirtækisins og hluti af starfsháttum þess en ekki byrði á annars eðlilegum umsvifum fyrirtækisins.
PwC býður fyrirækjum aðstoð við athugun á innra eftirliti með því meðal annars að:
- Meta áhættu sem gæti ógnað markmiðum fyrirtækisins
- Setja upp nauðsynlegar eftirlitsaðgerðir sem falla að störfum í fyrirtækinu
- Meta eftirlitsumhverfi
- Greina þörf fyrir upplýsingar og meta áreiðanleika þeirra
- Koma á stjórnendaeftirliti
PwC býður einnig þjónustu á sviði innri endurskoðunar sem felst í reglubundinni úttekt á stöðu og virkni innra eftirlits fyrir stjórn fyrirtækis.