Gagnsæi og upplýsingagjöf

Shaping the debate – 2007 World Economic Forum Annual Meeting Sækja skrá Gagnsæi
(221 Kb)


Öflug upplýsingagjöf tryggir nákvæmar og tímanlegar upplýsingar til viðeigandi aðila varðandi öll mikilvæg mál fyrirtækis. Áríðandi er að upplýsingar er koma frá fyrirtækjum séu skýrar, vandlega útbúnar, áreiðanlegar og tryggji jafnan aðgang hagaðila. Mikilvægustu þættir upplýsingagjafar varða fjárhag fyrirtækis, samband hagaðila og áhættuþætti.

Það er almennt samhljóða álit í viðskiptaheiminum á því hvað felist í öflugri upplýsingagjöf og gagnsæi. Skortur virðist þó vera á leiðbeiningum til fyrirtækja og stofnana um hvernig eigi að haga slíkri upplýsingagjöf. Þau fyrirtæki sem eru í fararbroddi veita upplýsingar á breiðari vettvangi en áður, sjónarhorn framkvæmdastjórnar kemur skýrt fram og skýrslur veita fjárfestum þær upplýsingar sem þeir þurfa. Þetta gerir það að verkum að samskipti innan og utan fyrirtækis verða skilvirkari.

PricewaterhouseCoopers er með sérstaka síðu, "Trends in Corporate Reporting", sjá hér til hliðar undir "Áhugaverðir tenglar", sem tileinkuð er upplýsingagjöf og gagnsæi fyrirtækja og stofnana. Þar er að finna dæmi úr viðskiptalífinu um allan heim og leiðbeiningar um hvernig best er að haga upplýsingagjöf.