Félagaréttur
Skatta- og lögfræðisvið PwC sérhæfir sig m.a. í ráðgjöf á sviði félagaréttar. Um er að ræða aðstoð við túlkun á lögum sem gilda um mismunandi félagaform ásamt ráðgjöf við uppbyggingu og stjórnun félaga. Þá felur þjónustan einnig í sér frágang á nauðsynlegum skjölum við stofnun, slit, samruna og skiptingu félaga.
Ráðgjöf PwC á sviði félagaréttar er m.a. eftirfarandi:
- Kynning á mismunandi félagaformum og aðstoð við val á félagaformi
- Umsýsla í tengslum við félög
- Stofnun, slit og samruni félaga
- Ráðningasamningar stjórnenda og annarra starfsmanna
- Breyting samþykkta
- Aðstoð við hækkun/lækkun á hlutafé
- Gerð hluthafasamninga, t.d. um skipan stjórnar, ráðningu framkvæmdastjóra, sameiginleg markmið í rekstri
- Aðstoð við innlausn hlutabréfa
- Breyting á rekstrarformi fyrirtækja
- Tilkynningar til fyrirtækjaskrár um breytingar hjá félaginu og önnur umsýsla
- Kostgæfnisathuganir (Due Diligence) á hlutafélögum og öðrum félögum
- Kaupréttaráætlanir og einstakir kaupréttarsamningar
- Lögfræðiráðgjöf í samningagerð auk skjalagerðar vegna hennar