Í lögum um ársreikninga er kveðið á um að stjórn skipi endurskoðunarnefnd. PricewaterhouseCoopers hefur nú gefið út bækling sem ætlað er að veita stjórn og nefndarmönnum í endurskoðunarnefnd mikilvægar upplýsingar um hlutverk og störf nefndarinnar. Jafnframt er ætlunin að varpa ljósi á mikilvægi slíkrar nefndar innan stjórnarhátta

. Sækja bækling um
endurskoðunarnefnd (317 KB)
Endurskoðunarnefnd annast hlutverk stjórnar sem lýtur að innra eftirliti. Í því felst greining og mat á áhættuþáttum og athugun á fyrirkomulagi og virkni eftirlitsaðgerða sem eru hluti þess innra eftirlits sem stjórn ber að koma á fót og viðhalda. Mikilvægur þáttur innra eftirlits sem fellur undir hlutverk endurskoðunarnefndar er það ferli og eftirlitsaðgerðir sem lúta að því að tryggja að fjárhagsupplýsingar séu áreiðanlegar hvort sem um er að ræða ársreikninga, árshlutreikninga eða innri stjórnendaupplýsingar.
Endurskoðunarnefnd annast samskipti við endurskoðendur. Nefndin fer yfir endurskoðunaráætlun endurskoðenda og fylgist með störfum þeirra. Í hlutafélögum er nefndinni ætlað að koma með tillögu til stjórnar um tilnefningu til hluthafafundar um endurskoðendur, semja um þóknun fyrir endurskoðun og ræða við þá um niðurstöður endurskoðunarinnar. Nefndin þarf einnig að ganga úr skugga um að endurskoðendur uppfylli ákvæði laga og reglna um óhæði í störfum sínum.