Launagreining PwC

Samanburður launa við markaðinn er einn af þeim mælikvörðum sem bæði stjórnendur og starfsmenn horfa til. Hverju fyrirtæki er mikilvægt að hafa réttu starfsfólki á að skipa og til að halda góðum starfsmönnum er brýnt að greiða þeim samkeppnishæf laun. Eftir miklar sveiflur í efnahags- og viðskiptalífi skapar Launagreining PwC tækifæri til að kalla fram stöðu launaþróunar og bera saman við eigin rekstur.

Reynsla þátttakenda hefur sýnt að upplýsingar sem stjórnendur fá nýtast vel til mótunar launastefnu og við einstaka launaákvarðanir.

Launagreining PwC hefur það að markmiði að greina markaðslaun á íslenskum vinnumarkaði. Í skýrslu Launagreiningar koma fram upplýsingar um markaðslaun fyrir u.þ.b. 90 starfsheiti á íslenskum vinnumarkaði. Gagna er aflað beint úr launakerfum fyrirtækjanna, en það gefur raunverulega mynd af markaðinum. Þátttakendum stendur til boða að kaupa sérskýrslur með nánari greiningum, m.a. samanburði á launagreiðslum m.v. sambærileg fyrirtæki, greiningu á launaþróun og greiningu á launamun kynjanna.