Skatta- og lögfræðisvið veitir margvíslega þjónustu á sviði skattaréttar og lögfræði, bæði er varðar skattamál hérlendis og erlendis. Aukin alþjóðavæðing og starfsemi íslenskra fyrirtækja erlendis krefst aukinnar þekkingar á skattalögum og reglum ólíkra landa. Skatta- og lögfræðisvið hefur því lagt áherslu á að efla sérhæfingu starfsfólks og mynda sterk tengsl við skrifstofur PwC um allan heim.
Mörg verkefni eru einnig unnin í samstarfi við önnur svið, t.d. eru áreiðanleikakannanir stór þáttur í okkar þjónustu og gjarnan unnar í samvinnu við endurskoðendur félagsins. Nýtist þar hin þverfaglega þekking eins og best verður á kosið.
Þjónusta okkar
Skatta- og lögfræðisvið leggur mikið upp úr því að bregðast við þörfum viðskiptavina okkar og við veitum ráðgjöf um nánast allt það er viðkemur umsýslu og ráðgjöf félagaréttar, sem verður sífellt umfangsmeirI í íslensku viðskiptalífi. Hér eru okkar helstu þjónustulínur: