Að starfa hjá PwC

Um PwC
PricewaterhouseCoopers hf. á Íslandi er hluti af stærsta alþjóðlega endurskoðunar- og fjármálaráðgjafafyrirtæki heims. Gæði þjónustu okkar hefur fært fyrirtækinu samkeppnisforskot á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Staða okkar byggir fyrst og fremst á afburða hæfileikum og reynslu starfsmanna PricewaterhouseCoopers. Við leggjum því mikið upp úr því að laða til okkar hæfileikaríkt fólk, efla það í starfi og veita því brautargengi innan fyrirtækisins.

Hjá PwC á Íslandi starfa um 120 manns, flestir með menntun í viðskipta- og rekstrarfræðum og/eða löggiltir endurskoðendur. Einnig starfa hjá fyrirtækinu lögfræðingar á sviði skatta. PwC er með starfsemi á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, á Akureyri, á Húsavík og á Selfossi.

Markmið
Okkar markmið eru að veita viðskiptavinum okkar bestu fáanlegu þjónustu mögulega á öllum sviðum og veita keppinautum okkar verðuga samkeppni. Kjörorð okkar eru Fólk – Þekking – Þjónusta .

Starfsumhverfið
Við leggjum áherslu á að starfsfólk okkar fái tækifæri til að sérhæfa sig á sínu áhugasviði innan síns tiltekna fags. Við bjóðum upp á fjölbreytt námskeið innan fyrirtækisins, en einnig er hægt að sækja námskeið hjá PwC erlendis. Hver starfsmaður fær handleiðslu hjá umsjónarmanni eða verkefnisstjóra hvers verkefnis.

Við leggjum mikið upp úr því að starfsólki líði vel í vinnu og á hverju ári fara fram starfsmannaviðtöl við mannauðsstjóra.

Alþjóðleg tengsl PwC á Íslandi – „Connected Thinking“
PwC er alþjóðlegt net fyrirtækja í 150 löndum um allan heim. Hugtakið „Connected Thinking“ lýsir því hvernig fyrirtæki PwC deila þekkingu sinni og reynslu, hugmyndum og vinnuaðferðum, oft með áherslu á sérstakar atvinnugreinar. Með því að deila þessari þekkingu og reynslu náum við framúrskarandi árangri á hverju sviði. „Connected Thinking“ er það sem setur okkur skrefi framar, skilur okkur frá öðrum fyrirtækjum og margfaldar styrkleika okkar með því að gera okkur kleift að tengja saman þær breytingar sem verða á atvinnugreinum og mörkuðum á alþjóðavettvangi við þær breytingar sem verða heima fyrir. „Connected Thinking“ sérgreinir vinnuaðferðir okkar, veitir okkur meiri breidd og gerir okkur einstök á okkar sviði.

PwC á Íslandi hefur myndað sterk tengsl við starfsfélaga sína erlendis og á í reglulegu samstarfi við PwC víðs vegar um heiminn. Okkar stefna er að veita því starfsfólki sem eftir því sækist tækifæri til að sækja námskeið eða starfa erlendis.

Siðareglur PwC
Siðareglur okkar lýsa þeim vinnuaðferðum og þeirri hegðun sem við væntum af öllu okkar starfsfólki. Siðareglurnar eru viðauki við þau lög, reglur og innri stefnur sem við störfum eftir. Ástæða þess að við höfum innleitt sérstakar siðareglur er vegna þess að við teljum það mikilvægt að viðskiptavinir okkar, starfsfólk og aðrir hagaðilar skilji hvað við stöndum fyrir og til hvers viðskiptavinir okkar og aðrir geta vænst af okkur.

Siðareglur okkar eru óaðskiljanlegur hluti vinnuaðferða okkar alls staðar í heiminum. Siðareglur okkar tengjast fyrirtækjagildum okkar sterkum böndum, en þau eru að veita framúrskarandi þjónustu, starfa sem liðsheild og vera í forystu á markaðnum. Siðareglur okkar sýna fram á hvernig þessi gildi eiga við okkar daglegu störf.

Hér er hægt að nálgast Siðareglur PwC. 


Af hverju að starfa hjá PwC?
Það eru fjölmörg fyrirtæki sem bjóða hæfileikaríku fólki spennandi störf, svo af hverju ættir þú að velja PwC?

Að starfa hjá PwC þýðir að starfa sem hluti af liðsheild með fjölbreyttum, forsjálum sérfræðingum sem reyna sífellt að finna nýjar lausnir við gömlum vandamálum. Við krefjumst þess af starfsfólki okkar að starfa samkvæmt hæstu kröfum og faglegum heilindum. Við vinnum saman til að fram bestu mögulegu niðurstöðum í hag viðskiptavina okkar og okkar sjálfra sem fagfólks.

Ef þú vilt starfa í krefjandi og spennandi umhverfi íslensks og alþjóðlegs viðskiptalífs, ef það freistar þín að tengjast stærsta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum, hafðu þá samband við okkur.