Að sækja um

Hjá PricewaterhouseCoopers starfar breiður hópur einstaklinga með margvíslega reynslu og menntun.

Flestir okkar starfsmenn starfa á endurskoðunarsviði, sem er okkar stærsta svið. Þar leitum við að einstaklingum sem eru:

  • löggiltir endurskoðendur
  • viðskiptafræðingar af endurskoðunarsviði
  • einstaklingar sem lokið hafa/eru í M.Acc. námi
  • einstaklingar sem hafa reynslu af endurskoðunarverkefnum, vanir bókhaldi og uppgjörum, skattframtalsgerð og tengdum verkefnum

Fyrirtækjaráðgjöfin sækist fyrst og fremst eftir einstaklingum með reynslu og menntun á sviði viðskipta, fjármála og lögfræði.

Skatta- og lögfræðisvið sækist fyrst og fremst eftir lögfræðingum sem hafa sérhæft sig í skattarétti eða sækjast eftir slíkri sérhæfingu.

Við erum ávallt í leit að hæfileikaríku fólki sem hefur áhuga á að slást í okkar góða hóp. Umsóknir sendast til Þórunnar Auðunsdóttur, mannauðsstjóra PwC, á netfangið storf@pwc.is