Helstu áskoranir orkuiðnaðarins á Íslandi og víðar eru að móta stefnur og áætlanir sem stuðla að arðbærni reksturs og á sama tíma taka tillit til ströngustu umhverfis- og félagslegra krafna. Til að standast slíkar kröfur þarf að huga vel að efnahagslegum, umhverfislegum og félagslegum þáttum. Einnig er mikilvægt að orku- og veitufyrirtæki stuðli að rannsóknum og taki þátt í iðnþróun og nýsköpun, sérstaklega er varðar umhverfisvænni tækni og þróun.
Okkar áherslur
Með því að beina sjónum sínum að umhverfisvænum viðskiptalausnum, áhættustýringu og samfélagsábyrgð styrkja orku- og veitufyrirtæki trúverðugleika sinn og traust á hinum almenna markaði. Mörg orku- og veitufyrirtæki um allan heim hafa innleitt með góðum árangri hugtakið sjálfbærni í alla stefnumótun. PricewaterhouseCoopers leggur áherslu á að orku- og veitufyrirtæki starfi í sátt við umhverfið, ávinni sér traust og virðingu samfélagsins og tryggi viðskiptavinum sínum góða og hagkvæma þjónustu.
Dæmi um okkar þjónustu