Lífeyrissjóðakerfið á Íslandi stendur á þremur stoðum; skylduaðild alls starfandi fólks að lífeyrissjóðum, fullri sjóðsöfnun og samtryggingu sjóðfélaga vegna ævilangra eftirlauna, sem einnig veitir þeim og fjölskyldum þeirra tryggingu fyrir tekjumissi af völdum orkutaps og andláts. Heildstæð rammalöggjöf kveður á um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, lágmarksréttindi og eftirlit með starfsemi sjóðanna sem treystir enn undirstöður þessa kerfis.
Okkar áherslur
PricewaterhouseCoopers leggur áherslu á langtímavöxt lífeyrissjóðanna, samkeppnishæfni, sjálfbærni og stöðugleika. Til þess að standa undir kröfum almennings þurfa lífeyrissjóðir að nýta sér nýjustu tækni til lífeyrisgreiðslna, upplýsingagjafar og gagnsæis og taka þátt í rannsóknar- og nýsköpunarverkefnum. Það skiptir sköpum að almenningur beri traust til lífeyrissjóðanna og að sjóðirnir standi undir skuldbindingum sínum. Góðir sjórnarhættir eru einn þátturinn í að öðlast og viðhalda slíku trausti. Í góðum stjórnarháttum felst öflug áhættustýring, gagnsæi og gott upplýsingaflæði, vel úthugsuð stefnumótun og áætlanagerð og samfélagsábyrgð.
Ljóst er að árangur einstakra lífeyrissjóða mun fara eftir hæfni þeirra til að takast á við breytt umhverfi og þróun á næstu árum. PricewaterhouseCoopers veitir margvíslega ráðgjöf og aðstoð sem bætt getur árangur og aukið velgengni rekstursins.
Dæmi um okkar þjónustu