Rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð

Mikilvægt er að rekstrar- og fjárhagsáætlunargerðir innan viðskiptaáætlana séu vandlega útbúnar og raunsæjar svo fyrirtæki viðhaldi áhuga fjárfesta fyrir áframhaldandi fjárfestingum og fjármögnunum og laði að mögulega fjárfesta. Rekstrar- og fjárhagsáætlanir ættu að endurspegla nákvæmlega vöruþróun, markaðssetningu, framleiðslu, áætlanir og stefnur fyrirtækis sem ætti að vera lýst í hverjum hluta viðskiptaáætlunar.

Tilgangur rekstrar- og fjárhagsáætlunargerðar er að sýna fjárfestum fram á að stjórnendur hafi nákvæma og úthugsaða áætlun um fjárhag og vöxt fyrirtækis. Góð áætlanagerð útlistar nákvæmlega hver fjárhagsáætlunin er í samræmi við rekstrarleg markmið fyrirtækis sem fjárfestar geta svo notað til að taka upplýstar ákvarðanir um fjárfestingar sínar.

Í flestum tilvikum ætlast fjárfestar til að fá nákvæma fjárhagsáætlun í rekstraráætlun, þ.m.t. efnahagsreikninga, rekstrarreikninga og sjóðstreymi fyrir síðustu 3 til 5 ár. Algengt er að sýna fjárhagsreikninga eftir mánuðum eða ársfjórðungum með útskýringum. Einnig ætti að koma fram söluáætlun og framleiðslukostnaður.

PricewaterhouseCoopers veitir aðstoð og ráðgjöf við að útbúa rekstrar- og fjárhagsáætlanir svo allar nauðsynlegar upplýsingar komi fram á skýran og einfaldan máta. PwC hefur mikla reynslu af rekstrar- og fjárhagsáætlanagerð og býr að sérfræðingum á því sviði.


Tengiliður
Kristján M. Bragason
Ráðgjafi
Fyrirtækjaráðgjöf
Sími : 550 5350
Tengdar áskoranir
Corporate Responsibility

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online