Gagnsæi og upplýsingagjöf

Shaping the debate – 2007 World Economic Forum Annual Meeting Sækja skrá Skilvirkni stjórnar og starfsemi
(983 Kb)

Öflug upplýsingagjöf tryggir nákvæmar og tímanlegar upplýsingar til viðeigandi aðila varðandi öll mikilvæg mál fyrirtækis. Áríðandi er að upplýsingar er koma frá fyrirtækjum séu skýrar, vandlega útbúnar, áreiðanlegar og tryggji jafnan aðgang hagaðila. Mikilvægustu þættir upplýsingagjafar varða fjárhag fyrirtækis, samband hagaðila og áhættuþætti.

Það er almennt samhljóða álit í viðskiptaheiminum á því hvað felist í öflugri upplýsingagjöf og gagnsæi. Skortur virðist þó vera á leiðbeiningum til fyrirtækja og stofnana um hvernig eigi að haga slíkri upplýsingagjöf. Þau fyrirtæki sem eru í fararbroddi veita upplýsingar á breiðari vettvangi en áður, sjónarhorn framkvæmdastjórnar kemur skýrt fram og skýrslur veita fjárfestum þær upplýsingar sem þeir þurfa. Þetta gerir það að verkum að samskipti innan og utan fyrirtækis verða skilvirkari.

PricewaterhouseCoopers leggur áherslu á að öflug upplýsingagjöf skapar gagnsæi sem er áríðandi þáttur góðra stjórnarhátta. Nánari upplýsingar um þjónustu okkar og áherslur má finna í bæklingnum hér til hliðar.

PricewaterhouseCoopers býður einnig viðskiptavinum sínum upp á sérstaka síðu, "Trends in Corporate Reporting" sem er að finna hér til hliðar undir "Áhugaverðir tenglar", sem tileinkuð er upplýsingagjöf og gagnsæi fyrirtækja og stofnana. Þar er að finna dæmi úr viðskiptalífinu um allan heim og leiðbeiningar um hvernig best er að haga upplýsingagjöf.


Tengiliður
Ólafur B. Kristinsson
Löggiltur endurskoðandi
Fyrirtækjaráðgjöf
Sími : 550 5338
Report Leadership
Read David Phillip's blog on Corporate reporting

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online