Virðisrýrnunarpróf

PricewaterhouseCoopers framkvæmir virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild fyrir fyrirtæki til samræmis við alþjóðlegan reikningsskilastaðal nr. 36 (IAS 36). Virðisrýrnunarpróf eru hluti af uppgjörsferli fyrirtækja sem innleiða alþjóðleg reikningsskil og er frábrugðið verðmati að því leyti að markmiðið er fremur að skoða hvort notkunarvirði eignarinnar í hendi eiganda nái ákveðnu lágmarki frekar en að meta gangvirði eignarinnar á markaði. Fari notkunarvirðið niður fyrir bókfært virði, þá er rætt um að viðskiptavildin sé virðisrýrð og er farið með slíka rýrnun í gegnum rekstrarreikning félaganna

PwC hefur framkvæmt virðisrýrnunarpróf fyrir fjölmörg fyrirtæki á Íslandi og bæði er þar um að ræða fyrirtæki með íslensk dótturfélög og erlend dótturfélög. PwC býr að sérfræðingum í þessum þætti innan Fyrirtækjaráðgjafar sem hafa mikla reynslu í framkvæmd og túlkun á reikningsskilastaðli IAS 36.


Tengiliður
Kristján M. Bragason
Ráðgjafi
Fyrirtækjaráðgjöf
Sími : 550 5350

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online