PricewaterhouseCoopers kappkostar að veita viðskiptavinum bestu þjónustu sem völ er á hér á landi í málefnum sem tengjast reikningsskilum. Þjónusta okkar felst meðal annars í eftirfarandi þáttum:
- Veita fyrirtækjum ráðgjöf á sviði alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS)
- Aðstoða fyrirtæki við að leggja fram reikningsskil (ársreikninga, árshlutareikninga) til samræmis við íslenskar reglur og alþjóðlega reikningsskilastaðla
- Aðstoða fyrirtæki við úrlausn flókinna reikningshaldslegra viðfangsefna
Hjá PricewaterhouseCoopers á Íslandi starfa einstaklingar með víðtæka reynslu og þekkingu á reikningsskilum.
Þar að auki gera tengsl okkar við PricewaterhouseCoopers Int. okkur kleift að kalla eftir kunnáttu fremstu sérfræðinga á sínu sviði ef á þarf að halda.