PricewaterhouseCoopers leggur áherslu á að stjórnarmenn komi úr fjölbreyttum hópi hæfra einstaklinga sem uppfylla hlutverk sitt og væntingar hluthafa og annarra hagaðila. Samsetning stjórnar skiptir miklu máli fyrir fyrirtæki og mikilvægt er að störf stjórnar fari eftir settum reglum og skipulagi svo starf hennar verði sem árangursríkast.
Mikilvægt er að nýir stjórnarmenn fái upplýsingar um hlutverk sitt og ábyrgð ásamt þjálfun í stjórnarstörfum.