Verðmat á fyrirtækjum og rekstrareiningum

PricewaterhouseCoopers leggur áherslu á vönduð vinnubrögð og skilvirkni við gerð verðmats og hefur unnið náið með fjölda stærri og smærri fyrirtækja við gerð þeirra. Mikilvægt er við gerð verðmats að taka til greina forsendur hvers fyrirtækis og hafa skilning á rekstri þess og rekstrarumhverfi.

Verðmat er oft framkvæmt þegar eigendaskipti verða á fyrirtæki eða hlutum þess og við sameiningu fyrirtækja. Einnig er verðmat framkvæmt til að veita stjórnendum og eigendum upplýsingar um árangur fyrirtækis og hugsanlegar leiðir til að auka verðmæti þess.

Hægt er að beita ýmsum aðferðum við gerð verðmata. PwC leggur því áherslu á að tilgreina þær forsendur sem verðmatið er byggt á, greina hver áhrif þess eru og tilgreina þær forsendur sem mest óvissa ríkir um. PwC notar að mestu sjóðstreymislíkön við gerð verðmats, en notar einnig til stuðnings samanburðargreiningar og kennitölur úr rekstri.


Tengiliður
Kristján M. Bragason
Ráðgjafi
Fyrirtækjaráðgjöf
Sími : 550 5350

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online