Sérstakar rannsóknir, greiningar og líkanagerð

Við hjá PricewaterhouseCoopers framkvæmum sérstakar rannsóknir og fjárhagsgreiningar fyrir stærri og smærri fyrirtæki. Í slíkum rannsóknum og greiningum felst jafnan upplýsingaöflun og vinnsla úr fjárhagslegum upplýsingum fyrirtækisins.

Við fjárhagsgreiningar notum við líkön til að gera okkur kleift að draga fram umbeðnar upplýsingar eða niðurstöður varðandi rekstur fyrirtækisins í heild, eða einstakra rekstrareininga þess. Þessar upplýsingar eru svo settar fram í líkaninu sem notað er sem hjálpartæki til að greina næmni og áhrif vissra þátta á rekstur eða áhrif vissra rekstrareininga á reksturinn í heild.

Einnig hefur PwC tekið að sér líkanagerð til fjárstreymisstýringa ásamt líkanagerð sem greinir gjaldmiðlaþarfir miðað við samsetningu tekna og gjalda í mismunandi myntum á mismunandi tímum.


Tengiliður
Kristján M. Bragason
Ráðgjafi
Fyrirtækjaráðgjöf
Sími : 550 5350
Time to Reflect

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online