Public Sector Research Institute

Ríkisstofnanir/Public Sector

Click here for English

PricewaterhouseCoopers býður upp á margþátta þjónustu til opinberra stofnanna. Við höfum unnið að fjölbreyttum verkefnum í samstarfi við opinberar stofnanir og búum að yfirgripsmikilli reynslu og þekkingu á uppbyggingu opinbera geirans, vinnulagsreglum, skipulagi og þeim áskorunum sem ríkisstofnanir standa jafnan frammi fyrir.

Eins og kunnugt er hefur ný stjórn breytt hinu pólitíska landslagi hér á landi eftir 12 ára stjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins. Hin nýja ríkisstjórn hefur sett sér þau markmið, meðal annarra, að gera umfangsmiklar breytingar á skipan stjórnarráðs Íslands. Fækka á bæði ráðuneytum og færa til málaflokka. Stjórnarráðið er því um það bil að taka gagngerum skipulagsbreytingum.

Þær breytingar sem m.a. hafa átt sér stað eru:

  • Lífeyristryggingar voru fluttar úr heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti til félagsmálaráðuneytis, sem kallað verður velferðarráðuneyti, og mun þar af leiðandi minnka hlutverk hins fyrrnefnda. Sjúkra- og slysatryggingar verða þó áfram hjá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.
  • Sveitarstjórnarmál færðust frá félagsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis sem og Íbúðalánasjóður, sem fellur nú undir ábyrgð fjármálaráðuneytis.
  • Ferðaþjónusta færðist frá samgönguráðuneyti til iðnaðarráðuneytis.
  • Þróunarsamvinna færðist frá utanríkisráðuneyti til viðskiptaráðuneytis.
  • Ráðuneytum iðnaðar- og viðskipta, sem starfrækt hafa verið undir einum ráðherra og einum ráðuneytisstjóra, hefur verið skipt upp.
  • Sjávarútvegsráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti voru sameinuð í eitt ráðuneyti undir stjórn eins ráðherra. Landgræðsla og skógrækt fluttust frá landbúnaðarráðuneyti til umhverfisráðuneytis og menntamál landbúnaðarins til menntamálaráðuneytis.
  • Hagstofa Íslands er ekki lengur ráðuneyti heldur sjálfstæð stofnun.
Þessar breytingar munu líklega hafa áhrif á stjórnsýsluna þegar í stað þó að framkvæmd þeirra gæti tekið tíma.

Sem óháður aðili með yfirgripsmikla sérfræðiþekkingu erum við vel í stakk búin að taka að okkur verkefni sem auðvelda stjórnvöldum á hverjum tíma að ná markmiðum sínum, s.s. að einfalda og nútímavæða stjórnsýsluna og bæta opinbera þjónustu. Við búum að hæfu og reynslumiklu fólki sem veitir meðal annars:
  • Sérfræðiráðgjöf varðandi notkun upplýsingatækni við að bæta opinbera þjónustu og auðvelda samskipti milli stjórnvalda og almennings.
  • Ráðgjöf við innleiðingu opinberra stefna og eftirfylgni.
  • Ráðgjöf varðandi endurskipulaggningu opinberra stofnana til að ná fram meiri skilvirkni og draga úr kostnaði.
  • Sérfræðiráðgjöf varðandi stofnanir Evrópusambandsins og vinnuferla þess.
  • Ráðgjöf við að bæta verkferli til að ná fram auknu gagnsæi, skilvirkni og viðeigandi forgangsröðun.
  • Sérfræðiráðgjöf á innra eftirliti.
  • Sérfræðiráðgjöf á sviði fjármála.

Það er einnig mjög mikilvægt fyrir opinberar stofnanir að kanna nýjar leiðir við að veita opinbera þjónustu til þegna sinna, skapa sjálfbærar stofnanir og stuðla að hagkvæmni. Samstarf einka- og opinbera geirans getur boðið upp á ný tækifæri fyrir ríkisstofnanir. Hluti af okkar þjónustu til opinberra stofnana er að starfa sem óháður ráðgjafi við að finna rétta samstarfsaðilann, nýjar leiðir við að fjármagna verkefni og ná fram jákvæðum niðurstöðum fyrir alla aðila.

Tengiliður
Halldór Þorkelsson
Sviðsstjóri
Fyrirtækjaráðgjöf
Sími : 550 5229
Regulate & collaborate

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online