Innra eftirlit

Shaping the debate – 2007 World Economic Forum Annual Meeting Sækja skrá Innra eftirlit
(557 Kb)

Innra eftirliti er ætlað það hlutverk að auðvelda stjórnendum fyrirtækja að hafa stjórn á rekstri þeirra. Innra eftirlit hefur verið skilgreint sem ferli sem mótast af stjórn fyrirtækis, innri stjórnendum þess og starfsmönnum. Tilgangur þess er að veita hæfilega vissu um að fyrirtækið nái eftirtöldum markmiðum:

  • Árangur og skilvirkni í starfseminni
  • Áreiðanlegar fjárhagsupplýsingar
  • Samkvæmni við lög og reglur
Innra eftirlit er ekki einstök aðgerð framkvæmd af einhverjum tilgreindum aðila innan eða utan fyrirtækisins heldur röð aðgerða sem finna má víðs vegar í fyrirtækinu og snertir ólík störf. Innra eftirlit er í raun samtvinnað eðlilegri starfsemi fyrirtæisins og hluti af starfsháttum þess en ekki byrði á annars eðlilegum umsvifum fyrirtækisins.

PricewaterhouseCoopers býður fyrirækjum aðstoð við athugun á innra eftirliti með því meðal annars að:
  • meta áhættu sem gæti ógnað markmiðum fyrirtækisins
  • setja upp nauðsynlegar eftirlitsaðgerðir sem falla að störfum í fyrirtækinu
  • meta eftirlitsumhverfi
  • greina þörf fyrir upplýsingar og meta áreiðanleika þeirra
  • koma á stjórnendaeftirliti
PricewaterhouseCoopers býður einnig þjónustu á sviði innri endurskoðunar sem felst í reglubundinni úttekt á stöðu og virkni innra eftirlits fyrir stjórn fyrirtækis.

Tengiliður
Ólafur B. Kristinsson
Löggiltur endurskoðandi
Fyrirtækjaráðgjöf
Sími : 550 5338
Tengdar þjónustur
How to get back to business
How managing political risk improves global business performance

© 2005-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online