Sarbanes-Oxley lögin í USA

Sarbanes-Oxley / Áhrif á viðhorf til innra eftirlits
Sarbanes-Oxley lögin hafa haft áhrif á innra eftirlit og verklag í því sem næst 85% bandarískra stórfyrirtækja. Nú velta menn fyrir sér hvort lögin munu nýtast til að endurvinna traust fjárfesta? Ítarlega umfjöllun má sjá á heimasíðu
PwC Global og tölfræðiupplýsingar um viðbrögð stjórnenda. PDF-skrá

Meira um Sarbanes-Oxley lögin í Bandaríkjunum
Fjármálahneyksli sem skóku bandarískan verðbréfamarkað á undanförnum tveim árum veiktu mjög alvarlega tiltrú fjárfesta einkum á stjórnendum fyrirtækja. Þessir atburðir kölluðu á einhvers konar viðbrögð frá löggjafanum og aðilum sem hagsmuna hafa að gæta vegna upplýsinga sem birtar eru um skráð fyrirtæki á verðbréfamörkuðum.

Lögin sem eru í ellefu köflum fjalla um allt frá aukinni ábyrgð endurskoðunarnefnda skráðra félaga til harðari viðurlaga fyrir svo kallaða hvítflibbaglæpi eins og verðbréfasvindl. Lögin gera ráð fyrir að bandaríska verðbréfaeftirlitið, Securities and Exchange Commission (SEC) gefi út reglur til þess að fylgja eftir ýmsum ákvæðum laganna.
Sarbanes-Oxley: Yfirlit
Í skjalinu hér fyrir neðan (pdf) er að finna samandregið yfirlit yfir hin ýmsu ákvæði laganna og umsögn PwC um einstaka kafla og og efnishluta í lögunum. Þar má einnig sjá tímasetningar á gildistöku einstakra ákvæða.
Sjá nánar PDF-skrá

Sarbanes-Oxley: Áhrif á innra eftirlit
Þau nýmæli er að finna í lögunum að nú er forstjórum og fjármálastjórum skráðra félaga gert að semja greinargerð um gildi sérstaks innra eftirlits með skráningarupplýsingum.

Sjá nánar PDF-skrá

Sarbanes-Oxley: Verðbréfamarkaðir
Kauphallir eins og NYSE, Amex og NASDAQ hafa í kjölfar SOX laganna endurbætt leiðbeinandi reglur og staðla fyrir þá sem skrá fyrirtæki á þessum mörkuðum. Þessar reglur beinast m.a. að hlutverki stjórna í umboði hluthafa og að sérstöku hlutverki endurskoðunarnefnda skráðra félaga.

Sjá nánar PDF-skrá

Sarbanes-Oxley: Upplýsingavefur
Á sérstökum upplýsingavef má finna meðal annars margvíslegar upplýsingar, umsagnir PwC, leiðbeiningar og álitsgerðir um efni laganna. Þar eru einnig upplýsingar um leiðir til þess að mæta kröfum laganna um upplýsingagjöf og málefni stjórnenda.

Meira

Sarbanes-Oxley: Á heimasíðu PwC
Á þessari vefsíðu má finna nýjustu reglur SEC og aðrar opinberar upplýsingar sem varða Sarbanes-Oxley lögin. Þar eru einnig birtar umsagnir PwC um tillögur SEC að reglum sem settar eru samkvæmt ákvæðum laganna.

Meira




© 2005-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online