Líklega enginn annar iðnaður en upplýsinga- og hátækniiðnaðurinn hefur jafn djúptæk áhrif á daglegt líf okkar og athafnir. Upplýsinga- og hátækniiðnaðurinn vex hratt og tekur örum breytingum. Fyrirtæki í þessum iðnaði verða að halda í við alla tækni- og markaðsþróun svo þau dragist ekki aftur úr og heltast úr lestinni. Það skiptir sköpum að fullnægja markaðsþörfum neytenda, hafa aðgang að fjármagni, vera virkir þáttakendur og jafnvel frumkvöðlar í rannsóknum og nýsköpun og skila fjárfestum sínum hagnaði. Fyrirtæki í þessum iðnaði standa frammi fyrir margskonar áskorunum, svo sem auknum þrýstingi um samþættingu, sífellt harðnandi samkeppni á alþjóðavísu og tískusveiflum á markaði.
Hvernig getur PwC hjálpað þér
Við aðstoðum og veitum viðskiptavinum okkar úr upplýsinga- og hátækniiðnaðinum ráðgjöf við að framkvæma nýjar hugmyndir, bregðast við mótstöðu, móta stefnur og áætlanir og ná árangri. PwC veitir markvissa og margþátta ráðgjöf á hinum ýmsu sviðum viðskiptalífsins bæði á heimamarkaði og á alþjóðavísu. Okkar nálgun byggir á langri reynslu og þekkingu, framsýnni hugsun og samstarfi. Við höfum skilning á hinum síbreytilega markaði, tækni og þróun.
Við búum að alþjóðlegu tengslaneti, þekkingu og reynslu sem á sér vart sinn líka hérlendis og þar má sérstaklega nefna tengsl okkar í gegnum PricewaterhouseCoopers Global við alþjóðastofnanir eins og Association for Telecommunications Services (ALTS), Telecommunications Industry Association (TIA), Cellular Telecommunications Industry Association (CTIA), International Telecommunications Union (ITU) og United States Telecommunications Association (USTA).
Dæmi um okkar þjónustu
Við hjá PricewaterhosueCoopers leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu á öllum sviðum og getum aðstoðað fyrirtæki við að greina tækifæri og ógnanir og ná betri árangri í rekstri. PricewaterhouseCoopers er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki sem hefur aðgang að þekkingargrunnum og sérfræðingum um allan heim og hefur áunnið sér orðaspor fyrir trausta og góða þjónustu á alþjóðavettvangi.