Banka- og fjármálamarkaður

Starfsemi banka- og fjármálamarkaðarins hérlendis sem erlendis hefur bæði eflst og breyst og starfar nú í síbreytilegu umhverfi þar sem samkeppni fer harðnandi, reglugerðum fer fjölgandi og alþjóðavæðing hefur síaukin áhrif.

Banka- og fjármálamarkaðurinn þarf sífellt að standast nýjar áskoranir í viðskiptaumhverfi sem er óstöðugt og flókið. Mæta þarf auknum laga- og reglugerðarkröfum og auknum þrýstingi frá almenningi og stjórnvöldum um bætta stjórnarhætti, gagnsæi og ábyrgð gagnvart samfélaginu.

Banka- og fjármálamarkaðnum hefur gengið vel síðustu ár við að efla viðskipti sín og auka hagnað, sérstaklega þegar litið er til kaupa, sölu og sameiningar fyrirtækja. Aukinn hagnaður, vaxandi virði hlutabréfa og aukið fjármagn stuðlar að áframhaldandi velgengni þessa markaðs.

Eins og aðrar atvinnugreinar hefur banka- og fjármálamarkaðurinn fundið fyrir efnahagssamdrætti. Dregið hefur úr efnahagslegum vexti og almenningur og stjórnvöld hafa síauknar áhyggjur af aukinni skuldabyrgði einstaklinga og neyslumynstri. Aukinn þrýstingur er á bankana um samþættingu, standast auknar kröfur viðskiptavina fyrir minni kostnað og skila hluthöfum og öðrum hagaðilum arði.

Framtíðarhorfur banka- og fjármálamarkaðarins mótast að miklu leyti af því hversu vel gengur að fylgja eftir nýjum laga- og reglugerðum og aðlagast nýjum viðskiptaskilyrðum. Hérlendis er mikilvægt að halda í við alþjóðlega og Evrópska reglugerð og má þá sérstaklega nefna hina nýju pan-evrópsku löggjöf MiFID.

Vegna þessara þátta hefur mikilvægi góðra stjórnarhátta aukist og fyrirtæki verða að huga að því hvernig þáttum eins og áhættustjórnun, hlutverki og ábyrgð stjórnenda, gagnsæi, innra eftirlits og upplýsingagjöf er háttað. Þessir þættir eru sérstaklega mikilvægir þegar haft er í huga þann þrýsing sem banka- og fjármálamarkaðurinn er undir að skila af sér stöðugum og traustum hagnaði og sýna fram á sjálfbærni reksturs.

Okkar áherslur

Í þessu umhverfi munu þau fyrirtæki hafa yfirhöndina sem búa að hæfileikaríku fólki sem hefur hæfni og getu til að breyta áskorunum í tækifæri, byggja sterkari tengsl við viðskiptavini sína, skerpa skilvirkni og stuðla að nýsköpun og frumkvæði. Við leggjum áherslu á að banka- og fjármálamarkaðurinn tileinki sér góða stjórnarhætti, skapi sér gott orðspor sem stuðlar að trausti almennings og skili hluthöfum sínum arði með vel úthugsuðum fjárfestingum.

Dæmi um okkar þjónustu


Við hjá PricewaterhosueCoopers leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu á öllum sviðum og getum aðstoðað fyrirtæki við að greina tækifæri og ógnanir og ná betri árangri í rekstri. PricewaterhouseCoopers er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki sem hefur aðgang að þekkingargrunnum og sérfræðingum um allan heim og hefur áunnið sér orðaspor fyrir trausta og góða þjónustu á alþjóðavettvangi.

Managing tomorrow's people

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online