Iðnaðarframleiðsla

Fyrirtæki í iðnaðarframleiðslu útvega tæki og aðrar vörur fyrir verksmiðjur og annan iðnað um allan heim. Iðnaðarframleiðslufyrirtæki eru fjölbreytt að stærð og umfangi og framleiða ólíkar vörur. Mörg fyrirtæki í iðnaðarframleiðslu velta fyrir sér valkostum sínum og huga að kaupum á öðru fyrirtæki, yfirtöku eða samruna, hvort sem er hérlendis eða erlendis. Önnur fyrirtæki telja betra að selja einingar innan fyrirtækis síns og einbeita sér frekar að sérstökum iðnaði með það að markmiði að auka arð sinn og sérhæfingu.

Flest þessara fyrirtækja mæta þó svipuðum áskorunum við framleiðslu og í rekstri. Há verðlagning á olíu, jarðgasi, stáli og kopar gerir iðnaðarframleiðslufyrirtækjum erfiðara um vik að reka arðbæran rekstur. Að hækka verð afurða og álagsgjöld er vandkvæðum bundið er litið er til markaðarins í dag þar sem neytendur eru tregari en áður að fjárfesta í nýjum og dýrum tækjum.

Viðskiptaumhverfið verður sí flóknara með auknum og hertum reglugerðum og flóknum skattalögum. Hvort sem litið er til heimamarkaðar eða viðskipta á alþjóðavettvangi má sjá að stjórnvöld víðs vegar um heim eru að reyna að ná betri tökum á viðskiptalífinu með auknum reglugerðum sérstaklega þegar tekið er tillit til hnattvæðingarinnar.

Okkar áherslur

Við hjá PricewaterhouseCoopers leggjum áherslu á að iðnaðarframleiðslufyrirtæki framleiða tæki sem auka framleiðslu og krefjast minna mannafls sem einfaldar stjórnun og sparar verksmiðjueigendum og öðrum í iðnaði fjármagn. Með því að auka eftirfylgni með vörum sínum og bjóða þjónustu í kringum vöruna eftir sölu teljum við að fyrirtæki sem framleiða iðnaðarvörur séu í betri tengslum við þarfir viðskiptavina sinna og byggi langtíma viðskiptasambönd.

Flest iðnaðarframleiðslufyrirtæki vilja draga úr framleiðslukostnaði og bæta gæðastjórnun en ná ekki að nýta sér að fullnustu mannauð sinn eða notfæra sér nýjustu tækni til fulls. Við hjá PricewaterhouseCoopers aðstoðum þig við að ná þessum markmiðum.

Dæmi um okkar þjónustu


Við hjá PricewaterhosueCoopers leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu á öllum sviðum og getum aðstoðað fyrirtæki við að greina tækifæri og ógnanir og ná betri árangri í rekstri. PricewaterhouseCoopers er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki sem hefur aðgang að þekkingargrunnum og sérfræðingum um allan heim og hefur áunnið sér orðaspor fyrir trausta og góða þjónustu á alþjóðavettvangi.

New Opportunities for Foreign Manufacturers

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online