Lífeyrissjóðir

Lífeyrissjóðakerfið á Íslandi stendur á þremur stoðum; skylduaðild alls starfandi fólks að lífeyrissjóðum, fullri sjóðsöfnun og samtryggingu sjóðfélaga vegna ævilangra eftirlauna, sem einnig veitir þeim og fjölskyldum þeirra tryggingu fyrir tekjumissi af völdum orkutaps og andláts. Heildstæð rammalöggjöf kveður á um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, lágmarksréttindi og eftirlit með starfsemi sjóðanna sem treystir enn undirstöður þessa kerfis.

Lífeyrissjóðir hafa nýverið öðlast aukið frelsi til fjárfestinga hérlendis sem erlendis með rýmkandi heimildum til fjárfestinga. Með aukinni hlutabréfaeign þurfa sjóðirnir að gæta hagsmuna sinna í auknum mæli í þeim hlutafélögum sem þeir eiga hluti í og vera virkari en nú er á aðalfundum hlutafélaga. Eðlilegt er að íslensku lífeyrissjóðirnir leggi talsverða vinnu og fjármuni í að stuðla að almennt hagkvæmu fjármálaumhverfi á Íslandi, t.d. með frumkvæði að opinskárri umræðu, áhrifum á löggjöf, aðhaldi að markaðsaðilum og þrýstingi á og stuðningi við eftirlitsaðila. Stór hluti fjárfestinga lífeyrissjóðanna er erlendis og líklegt er að þróun lífeyrismála erlendis, sérstaklega í Evrópu, muni hafa áhrif hér á landi.

Með aukinni samkeppni innanlands og erlendis frá, auknum þrýstingi á lífeyrissjóði að sameinast vegna stærðarhagkvæmni og auknar kröfur almennings um betri og fjölbreyttari þjónustu bendir allt til þess að lífeyrissjóðir á Íslandi haldi áfram að sameinast og að þeim fækki. Meiri sveigjanleiki hefur færst til lífeyrisreglna og iðgjalda og lífeyrissparnaður almennings hefur aukist. Líklegt er að á næstu árum muni lífeyrissjóðir bjóða upp á enn frekari valkosti í lífeyrismálum, bæði innan lágmarkstryggingarverndarinnar svo og í viðbótarlífeyrissparnaði. Fjölbreytni í lífeyrisréttindum sjóðfélaga mun því aukast verulega frá því sem verið hefur.

Ein helsta áskorun sem lífeyrissjóðir munu standa frammi fyrir er sú að lífaldur þjóðfélagsþegna á Íslandi fer hækkandi á sama tíma og fæðingum fækkar, en það er í takt við þá þróun sem þegar hefur hafist í mörgum nágrannaríkjum okkar. Umræða um kjör aldraðra og ellilífeyri hefur aukist á öldum ljósvakans síðustu ár og er slík umræða um lífeyrismál að verða sjálfsagður þáttur í umfjöllun um almenn lífsgæði almennings. Mikilvægt er að lífeyrissjóðirnir bregðist við þessari þróun, myndi traust á milli sín og almennings og skapi sér gott og traust orðspor með öruggum og vel úthugsuðum fjárfestingum, góðum stjórnarháttum og samfélagsábyrgð.

Okkar áherslur

Við hjá PricewaterhouseCoopers leggjum áherslu á langtímavöxt lífeyrissjóðanna, samkeppnishæfni, sjálfbærni og stöðugleika. Til þess að standa undir kröfum almennings þurfa lífeyrissjóðir að nýta sér nýjustu tækni til lífeyrisgreiðslna, upplýsingagjafar og gagnsæis og taka þátt í rannsóknar- og nýsköpunarverkefnum. Það skiptir sköpum að almenningur beri traust til lífeyrissjóðanna og að sjóðirnir standi undir skuldbindingum sínum. Góðir sjórnarþættir eru einn þátturinn í að öðlast og viðhalda slíku trausti. Í góðum stjórnarháttum felst öflug áhættustýring, gagnsæi og gott upplýsingaflæði, vel úthugsuð stefnumótun og áætlanagerð og samfélagsábyrgð.

Ljóst er að árangur einstakra lífeyrissjóða mun fara eftir hæfni þeirra til að takast á við breytt umhverfi og þróun á næstu árum. PricewaterhouseCoopers veitir margvíslega ráðgjöf og aðstoð sem bætt getur árangur og aukið velgengni rekstursins.

Dæmi um okkar þjónustu

Við hjá PricewaterhouseCoopers leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu á öllum sviðum og getum aðstoðað fyrirtæki við að greina tækifæri og ógnanir og ná betri árangri í rekstri. PricewaterhouseCoopers er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki sem hefur aðgang að þekkingargrunnum og sérfræðingum um allan heim og hefur áunnið sér orðaspor fyrir trausta og góða þjónustu á alþjóðavettvangi.

Regaining Control of Corporate Pension Funding

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online