Opinberar stofnanir

Íslenskt stjórnvöld starfa nú á tímum örra breytinga þar sem alþjóðavæðing hefur síaukin áhrif á efnahagslíf okkar, íslensk fyrirtæki hafa í auknum mæli markað sér sess í alþjóðlegu viðskiptalífi og mikilvægara er nú en áður að halda íslenskum fyrirtækjum innan landssteinanna, sem og gera íslenskt viðskiptaumhverfi vinsamlegt og hagstætt fyrir erlend fjárfestingarfyrirtæki.

Á alþjóðavísu hefur brotthvarf bandaríska hersins að einhverju marki breytt afstöðu Íslands í alþjóðasamstarfi og munu íslensk stjórnvöld að öllum líkindum líta enn meira til Evrópu og vera virk í norrænu samstarfi sem áður. Reglugerðir í gegnum EFTA hafa streymt inn í landið nú um árabil og bendir ekkert annað til þess en að sú Evrópuvæðing muni halda áfram hérlendis, sem hefur og mun hafa mikil áhrif á innlent reglugerðarumhverfi.

Í þessu umhverfi og á tímum hnattvæðingar þurfa íslensk stjórnvöld á öllum stigum stjórnsýslunnar að bregðast við breyttri lýðfræði borgaranna, stuðla að öflugu og sjálfbæru velferðarkerfi, auka skilvirkni opinberra stofnanna, búa að góðri fjárhagsstjórn, stuðla að nýsköpun og samkeppnishæfni og gæta að öryggi, heilsu og hag íbúa sinna.

Stjórnvöld þurfa að vera vel í stakk búin til að mæta hvers konar vandamálum sem upp koma og standa undir því trausti sem almenningur sýnir þeim. Aukin krafa er um að stjórnvöld, opinberar stofnanir og félagasamtök innleiði góða stjórnarhætti, séu skilvirk, hafi gott upplýsingaflæði og stundi gagnsæa viðskiptahætti. Mikilvægt er að innleiða öflugt innra eftirlit, góða fjárhagsstjórnun og starfa í samræmi við lög og reglugerðir.

Nútímavæðing opinbera geirans verður að vera í stanslausri skoðun og þróun. Núverandi þróun gefur til kynna að einkageirinn muni spila sífellt stærra hlutverk við að veita borgurum opinbera þjónustu. Mikilvægt er að opinberar stofnanir kanni vel þá möguleika sem samstarf við einkaaðila kann að bjóða upp á.

Okkar áherslur

PricewaterhouseCoopers trúir á margþátta lausnir. Við teljum að fleiri en ein aðferð séu fyrir hendi sem stjórnvöld, opinberar stofnanir og félagasamtök geta farið til að bæta skilvirkni og árangur og móta vel útfærðar stefnur og áætlanir sem fylgt er eftir þar sem góð þjónusta til almennings er í fyrirrúmi. Við teljum því að skoða verði hvert tilfelli fyrir sig í breiðu samhengi og með sérfræðilegri nálgun.

Dæmi um okkar þjónustu


Okkar reynsla

PwC hefur unnið með stjórnvöldum um allan heim og öðlast reynslu og hæfni til að veita trausta ráðgjöf og koma fram með nýja sýn og nýjar lausnir. Þróunin hér sem annars staðar sýnir fram á að samstarf milli einka- og opinbera geirans muni aukast þegar kemur að opinberri þjónustu. Við getum gert slíkt samstarf auðveldara og skilvirkara með sérfræðilegri ráðgjöf og hlutlausu mati.

Við höfum skilning og þekkingu á íslensku laga- og reglugerðarumhverfi, efnahagslegu og samfélagslegu umhverfi og getu til að leysa vanda sem hefur verið rótgróinn og langvarandi. Við höfum haldgóða reynslu og þekkingu á Evrópsku reglugerðarumhverfi og veitum ráðgjöf hvernig innleiða má nýjar reglugerðir á sem auðveldastan og skilvirkastan hátt.

Við hjá PricewaterhosueCoopers leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu á öllum sviðum og getum aðstoðað fyrirtæki við að greina tækifæri og ógnanir og ná betri árangri í rekstri. PricewaterhouseCoopers er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki sem hefur aðgang að þekkingargrunnum og sérfræðingum um allan heim og hefur áunnið sér orðaspor fyrir trausta og góða þjónustu á alþjóðavettvangi.


Áhugaverðir tenglar
Regulate & collaborate
A Guide to PricewaterhouseCoopers in the European Union

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online