Sjávarútvegs- og fiskvinnslufyrirtæki

PricewaterhouseCoopers hefur starfað sem ráðgjafi fyrir sjávarútvegs- og fiskvinnslufyrirtæki bæði á heimamarkaði og erlendis. Við höfum reynslu og þekkingu á þessu sviði og getum aðstoðað fyrirtæki við að bæta rekstur sinn og árangur. Okkar styrkleikar felast í alþjóðlegu tengslaneti okkar, þekkingu og skilning á sjávarútvegi og fiskvinnslu, sögu þess og markaðsáskorunum.

Við leggjum áherslu á náið samstarf við viðskiptavini okkar og trausta og áreiðanlega ráðgjöf. Ráðgjöf okkar er yfirgripsmikil og nær til þátta eins og aðstoð við að finna fjárfesta fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi og fiskvinnslu, ráðgjöf varðandi samkeppnismál, skipaflota og eignarhald, ráðgjöf við endurgerð stefnumótunar og viðskiptaáætlana og lagaleg ráðgjöf varðandi endurskipulaggningu og endurfjármögnun fyrirækja.

Við aðstoðum einnig fyrirtæki á alþjóðavettangi, s.s. samskipti við alþjóðastofnanir varðandi sjávarútveg og fiskvinnslu (NEAFC, NAFO, CAMMLR, WTO, ESA), veitum ráðgjöf varðandi lagaumhverfi Evrópusambandsins t.d. varðandi umhverfisreglur, meðferð fisks og fiskafurða, tollamál og hreinlætiskröfur og ráðgjöf varðandi starfshætti EFTA og Evrópudómstólsins.

Dæmi um okkar þjónustu


Við hjá PricewaterhouseCoopers leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu á öllum sviðum og getum aðstoðað fyrirtæki við að greina tækifæri og ógnanir og ná betri árangri í rekstri. PricewaterhouseCoopers er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki sem hefur aðgang að þekkingargrunnum og sérfræðingum um allan heim og hefur áunnið sér orðaspor fyrir trausta og góða þjónustu á alþjóðavettvangi.

Canadian Life Science Industry Forecast 2007

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online