Störf hjá PwC á Íslandi

PricewaterhouseCoopers hf. á Íslandi er hluti af stærsta alþjóðlega endurskoðunar- og fjármálaráðgjafafyrirtæki heims. Gæði þjónustu okkar hefur fært fyrirtækinu samkeppnisforskot á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Staða okkar byggist fyrst og fremst á afburða hæfileikum og reynslu starfsmanna PricewaterhouseCoopers. Við leggjum því mikið upp úr því að laða til okkar hæfileikaríkt fólk, efla það í starfi og veita því brautargengi innan fyrirtækisins.

Hjá PwC á Íslandi starfa yfir 100 manns, með menntun í viðskipta- og rekstrarfræðum og/eða löggiltir endurskoðendur. Einnig starfa hjá fyrirtækinu lögfræðingar á sviði skatta.

Ef þú vilt starfa í krefjandi og spennandi umhverfi íslensks og alþjóðlegs viðskiptalífs, ef það freistar þín að tengjast stærsta fyrirtæki á sínu sviði í heiminum, hafðu þá samband við okkur. Mannauðsstjóri okkar er Þórunn Auðunsdóttir og hægt er að senda henni umsóknarbréf ásamt ferilskrá á netfangið storf@is.pwc.com.


Tengiliður
Þórunn Auðunsdóttir
Mannauðsstjóri
Sími : 550 5240

© 2005-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online