Auglýstar stöður

Vegna aukinna umsvifa og spennandi verkefna viljum við stækka okkar góða starfsmannahóp enn frekar. Við óskum eftir að ráða löggilta endurskoðendur eða viðskiptafræðinga af endurskoðunarsviði
til fjölbreyttra starfa á skrifstofu okkar í Reykjavík. Þetta er tækifæri til að starfa í krefjandi og spennandi umhverfi íslensks og alþjóðlegs viðskiptalífs, með þátttöku í fjölþjóðlegu samstarfi og
möguleikum á hluta starfstímans ytra.

Hvaða kröfur gerum við?
Við leitum eftir kraftmiklu samstarfsfólki sem langar til að takast á við verðug og gefandi verkefni. Viðkomandi sækist eftir því að læra enn meira, trúir því að framlag hans/hennar skipti máli og einblínir
á lausnir fremur vandamál.

  • Reynsla af endurskoðunarverkefnum…
  • … eða af bókhaldi, uppgjörum, skattaframtalsgerð og tengdum verkefnum
  • Jákvætt hugarfar og uppörvandi framkoma
  • Góð samstarfshæfni og vilji til að miðla öðrum
  • Öguð vinnubrögð og skipulagshæfni

Hvað bjóðum við?
Við bjóðum þér áhugavert starf hjá nútímalegu fyrirtæki sem er hluti af PwC endurskoðunarkeðjunni, þeirri stærstu á sínu sviði í heiminum. Þú vinnur mikilvæg verk með góðu samstarfsfólki
og við tökum vel á móti þér.
  • Góður starfsandi og tækifæri til að vaxa í starfi
  • Fjölbreytt verkefni þar sem þitt frumkvæði nýtist
  • Símenntun í alþjóðlegu og lærdómsríku umhverfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Áhersla á hreyfingu og heilbrigða lífshætti

Umsóknir
Umsóknir óskast sendar Þórunni Auðunsdóttur á netfang storf@is.pwc.com, sem veitir einnig nánari upplýsingar um störf hjá PwC.

Tengiliður
Þórunn Auðunsdóttir
Mannauðsstjóri
Sími : 550 5240

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online