Að sækja um

PricewaterhouseCoopers fagnar umsóknum frá bæði reyndum einstaklingum og þeim sem eru að feta sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Hjá okkur starfar breiður hópur einstaklinga með margvíslega reynslu og menntun.

Flestir okkar starfsmenn starfa á endurskoðunarsviði, sem er okkar stærsta svið. Þar leitum við að einstaklingum sem eru:

  • löggiltir endurskoðendur
  • viðskiptafræðingar af endurskoðunarsviði
  • einstaklingar sem lokið hafa/eru í M.Acc. námi
  • einstaklingar sem hafa reynslu af endurskoðunarverkefnum, vanir bókhaldi og uppgjörum, skattframtalsgerð og tengdum verkefnum

Fyrirtækjaráðgjöfin sækist fyrst og fremst eftir einstaklingum með reynslu og menntun á sviði viðskipta, fjármála og lögfræði.

Skatta- og lögfræðisvið sækist fyrst og fremst eftir lögfræðingum sem hafa sérhæft sig í skattarétti eða sækjast eftir slíkri sérhæfingu.

Við þökkum þér fyrir að sýna PwC áhuga og biðjum þig vinsamlegast um að senda umsókn þína til Þórunnar Auðunsdóttur, mannauðsstjóra PwC, á netfang storf@is.pwc.com. Við bendum þér einnig á að skoða auglýst störf, sem er að finna hér.

Tengiliður
Þórunn Auðunsdóttir
Mannauðsstjóri
Sími : 550 5240

© 2007-2008 PricewaterhouseCoopers. All rights reserved. PricewaterhouseCoopers refers to the network of member firms of PricewaterhouseCoopers International Limited, each of which is a separate and independent legal entity.
Accessibility information Skip navigation Countries online