1. júlí 2008: Til þess að fagna þeim tímamótum að í dag eru 10 ár síðan Pricewaterhouse og Coopers & Lybrand sameinuðust og til varð PricewaterhouseCoopers hefur PwC hafið samstarf með Sameinuðu þjóðunum við að byggja skóla, þjálfa kennara og veita námsgögn til yfir 20.000 barna í flóttamannabúðum í Darfúr héraðinu í Súdan. Þetta frumkvæði byggir á framlögum PwC fyrirtækjanna og starfsfólki þeirra, en 10 daga átak var innan PwC sem hvatti stjórnendur og starfsfólk til að leggja sitt af mörkum til að styrkja þetta frumkvæði. Átakið hefur þegar skilað mörg hundruð þúsund dollurum í söfnunina og lagði stjórn PwC á Íslandi og starfsfólk sitt af mörkum með háum fjárframlögum. Teljum við þetta góða leið til þess að fagna þessum mikilvægu tímamótum og velgengni PricewaterhouseCoopers um allan heim.
Fimmtudaginn 5. júní býður Fjárfestingarstofan til morgunverðarfundar þar sem kynntar verða niðurstöður samkeppnisgreiningar á Íslandi fyrir ákveðin form fjármálafyrirtækja. PricewaterhouseCoopers er virkur þátttakandi í ráðstefnunni. Aðal fyrirlesari er Laurens Narraina, skattasérfræðingur hjá PwC í Belgíu og Elín Árnadóttir, sviðsstjóri Skatta- og lögfræðisviðs PwC í Reykjavík tekur þátt í pallborðsumræðum. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel kl. 08:15 - 10:00. Hér má nálgast glærur Laurens Narraina. Sækja PDF skrá (416 kb)
Föstudaginn 16. maí halda PricewaterhouseCoopers og Háskólinn á Bifröst ráðstefnu um hvað felist í góðum stjórnarháttum innan opinberra stofnanna og fyrirtækja undir yfirskriftinni 'Stjórnarhættir hins opinbera og einkageirinn - má læra hvort af öðru?'. Sérfræðingar í stjórnarháttum og þekkt fólk úr atvinnulífinu heldur fyrirlestra og gefst fólki tækifæri á að koma með spurningar úr sal. Ráðstefnan verður haldin á Grand hótel og stendur yfir frá 14:00 - 16:00 og móttaka fyrir ráðstefnugesti á eftir. Nánari dagskrárliði er að finna hér.
PricewaterhouseCoopers er leiðandi alþjóðlegt þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki og eru leiðtogar PwC reglulega beðnir um að deila viðhorfum sínum með viðskiptaheiminum. Samuel A. DiPiazza, framkvæmdastjóri PwC Global, talaði við Financial Times þann 11. apríl 2008 um þróun hagkerfisins og hvað við getum lært af síðustu árum. Hægt er að finna Financial Times viðtalið, og önnur nýleg viðtöl, hér.
Andrew Khan, ráðgjafi hjá PricewaterhosueCoopers, hélt fyrirlestur þann 18. mars hjá Félagi löggiltra endurskoðenda, um tölvuendurskoðun. Þar fjallaði Andrew fyrst og fremst um hvað tölvuendurskoðun er, af hverju fyrirtæki þurfa að huga að endurskoðun tölvukerfa fyrirtækja, hvaða hættur ber helst að varast og hvernig slík endurskoðun fer fram. Fyrirlesturinn fór fram á ensku og hægt er að nálgast glærurnar hér. Sækja PDF skrá (111 kb)
PricewaterhouseCoopers og Oracle stóðu fyrir ráðstefnu "Öryggi í viðskiptakerfum" þann 13. mars sem haldin var í Húsnæði PwC í Skógarhlíð 12. Meðal þess sem fjallað var um er kennistuldur og mögulega glötuð viðskiptatækifæri.
Dagskrá, skráning og aðrar upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér
PricewaterhouseCoopers tók þátt í Framadögum sem haldnir voru föstudaginn 1. febrúar í Háskólabíó. Framadagar heppnuðust vel og nemendur tóku vel á móti okkur. Nánar um PwC á Framadögum
Á hverju ári styrkir PricewaterhouseCoopers góðgerðarmál í stað þess að senda viðskiptavinum okkar jólakort. Desember 2007 ákváðum við að styrkja forvarnarsvið Samhjálpar, Marítu á Íslandi.
Hér er hægt að lesa nánar um styrk PwC til Marítu
Þann 11. desember 2007 stóðu PricewaterhouseCoopers og Viðskiptaráð Íslands fyrir sameiginlegum morgunverðarfundi um Milliverðlagningu. Á fundinum fjölluðu Aðalsteinn Hákonarson, deildarstjóri skattasviðs Ríkisskattstjóra, Kristján G. Valdimarsson, forstöðumaður skattaráðgjafar Landsbankans og Ian Dykes, meðeigandi hjá PwC í Bretlandi um milliverðlagsreglur og hugsanlega nálgun hérlendis. Nánari upplýsingar um morgunverðarfundinn er að finna hér ásamt glærum fyrirlesara