Komdu og vertu með okkur í einn upplýsandi og athyglisverðan eftirmiðdag!
PricewaterhouseCoopers & Oracle bjóða þér að eyða með okkur “áhættusömum” eftirmiðdegi þar sem við munum miðla þekkingu okkar og reynslu varðandi kennitölur og aðgang að kerfum (Identity & Access Management – IAM). Við byggjum reynslu okkar og þekkingu á þeim fjölmörgu verkefnum sem við höfum unnið með viðskiptavinum okkar með framúrskarandi árangri.
Efnistök ráðstefnunnar:
Kennistuldur (Identity theft).
Óheimilaður aðgangur að mikilvægum kerfum, gögnum, kreditkortum, viðskiptaleyndarmálum… afhjúpað í einum hvelli!
Glötuð viðskiptatækifæri þegar viðskiptavinir fá ekki aðgang þegar þeir þurfa.
Mánuðum varið að útbúa hlýtingarskýrslur fyrir endurskoðendur.
Innbrot og öryggisbrestir varðandi kenni og aðgang sem kosta milljarða evra árlega í atvikum sem verða opinber eða er haldið leyndum.
Innan fyrirtækja er óvissa um ferla við kennivottun, pirringur og glötuð framleiðni þar sem tölvudeildir reyna að stjórna aðgangsheimildum fyrir starfsfólk, samstarfsaðila og viðskiptavini að þeim kerfum sem þeir sannarlega þurfa aðgang að.
Dagskrá:
Ráðstefnan er haldin 13. mars, stendur frá 14:00 til 16:30 og fer fram á ensku.
- Opnunarávarp - Ragnar Þorgeirsson, framkvæmdastjóri PwC á Íslandi.
- Kennistýring frá sjónarhorni stjórnenda, Martin Povelsen, Partner PwC Danmörku
- Martin skilgreinir og fjallar um kennistýringu í tengslum við aðgangsstjórnun almennt og með hliðsjón af skilvirkni ferla, öryggis og stjórnunar. Martin mun einnig fjalla um aðferðafræði PwC í þessum efnum og gefa góð ráð varðandi verkefnistjórnun svona verkefna.
- Kaffihlé & umræður
- Viðskiptaskynsemi og kostir við fjárfestingu í kennilausnum. Patrick McLaughlin, EMEA Director Security Solutions hjá Oracle
- Patrick mun fara yfir þau viðskiptalegu sjónarmið sem höfð eru til hliðsjónar í Bandaríkjunum og Evrópu við ákvarðanir um fjárfestingu í kennilausnum á seinni árum. Þetta er gert með tilvísun til Oracle viðskiptavina og þeirra reynslu í margvíslegum greinum atvinnulífsins. Farið verður yfir helstu atriði sem kennilausnir verða að uppfylla sem og hvers vegna Oracle lausnir eru leiðandi á þessu sviði.
- Samantekt & næstu skref, Security Business Manager Helle Johansen hjá Oracle
Staðsetning
PricewaterhouseCoopers hf.
Skógarhlíð 12, 5 hæð
105 Reykjavík
Skráning
Vinsamlega sendið tölvupóst til Guðjóns V. Valdimarssonar á netfangið gudjon.v.valdimarsson@is.pwc.com
Ítarlegri upplýsingar um fyrirlesara
| Martin Povelsen Er partner hjá PricewaterhouseCoopers og forstöðumaður öryggis og eftirlitsmála hjá PwCí Danmörku. Martin hefur á ferli sínum leitt fjölda verkefna bæði fyrir einkafyriræki í margvíslegum starfsgreinum sem og opinberra aðila. Hann hefur einnig verið ráðgjafi við uppsetningu aðgangs- og öryggisstýringakerfa vegna sjálfsþjónustukerfa á vefsíðum. Öryggis- og tæknideild innan fyrirtækjasviðs PwC í Danmörku samanstendur af 40 sérhæfðum ráðgjöfum þar sem kennilausnir og aðgangskerfi er einn hópur. Aðrir meginþættir eru árásarpróf, ráðgjöf í öryggi upplýsingatæknimála og áætlanagerð um rekstrarsamfellu.
|
| Patrick McLaughlin, CISSP Er Director of Security fyrir Oracle EMEA og býr að yfir 10 ára reynslu af upplýsingaöryggismálum. Hann er ábyrgur fyrir kynningu á öryggishugbúnaði og öryggislausnum frá Oracle, bæði innan Oracle og við viðskiptavini á EMEA svæðinu. Hann vinnur innan Solutions Architecture teymisins og er ábyrgur fyrir að kynna alla vörulínu Oracle og ýmsar aðrar sértækar lausnir (grid, SOA, content management, BI, etc).
Áður en Patrick hóf störf hjá Oracle var hann CTO hjá Baltimore Technologies þar sem hann var aðalhönnuður fyrir PKI lausnum fyrirtækisins og ábyrgur fyrir rannsóknum, samningum við þjónustuaðila og að vinna með stórum viðskiptavinum innan hins opinbera og fjármálageirans. Patrick vann einnig sem sjálfstæður ráðgjafi um árabil og hefur víðtæka reynslu í dreifðum kerfum og síma- og fjarskiptaþjónustu þar sem hann vann fyrir Broadcom og Ericsson í 10 ár.
|
|